Tónmennt og tónmenntakennsla

Rúðurytmar

Rúðurytmar er einföld leið til að skrá rytma án þess að kunna neitt í flókinni rytmaskrift. Fyrir marga er auðveldarar að skrá og lesa rytma með þessari aðferð því hún krefst engrar kunnáttu í hefðbundinni tónfræði.

Grunnhugmyndin kemur frá tölvuforritum (eins og fleximusic) þar sem rytmar eru skráðir með því að fylla inn röð af litlum ferningum (RÚÐUM). Ef allar rúður eru útfylltar verður rytminn eins og viðstöðulaus púls (techno beat) en þegar sumar rúður eru auðar fer að myndast rytmi og rytmamynstur.

Hægt er að endurtaka átta rúður aftur og aftur eða búa til lengri búta með 16 eða fleiri rúðum.

Átta rúður tómar

Screenshot 2014-08-28 13.55.08

Allar rúður fylltar (Átta jöfn slög eins og stöðugur púls)

Screenshot 2014-08-28 13.56.16

Sumar rúður fylltar -Myndar rytma mynstrið: TA -TÍ-TÍ – TA – TA  ( ♩♫♩♩) eða ♪٢♪ ٢ ♪ ♫  ٢

Screenshot 2014-08-28 13.56.32

Hér má ná í eyðublöð með rúðum til að vinna með rytmamynstur og æfa sig í að klappa þau:

Rúðurytmar EYÐUBLÖÐ með 16 rúðu runum

Rúðurytmar og hefðbundin rytmaskrift (samanburður)