„Þegar tónlistarmenning er skoðuð eru staðreyndirnar sláandi. Hvar eru stúlknabílskúrsböndin á móti öllum þeim tugum strákabanda sem skjóta upp kollinum ár hvert? Af hverju er litið á trommur, rafmagnsgítar og bassa sem strákahljóðfæri? Er það vegna þess að stelpur geti ekki spilað á þessi hljóðfæri? Vitaskuld er það ekki raunin. En hver er ástæðan fyrir þessari kynjaskiptingu í hljóðfæraskipan? Einnig má velta fyrir sér ástæðum fyrir því að stelpur verða óöruggar og óframfærnar á unglingsárunum og hvort eitthvað sé hægt að gera til að sporna við þeirri þróun og brjóta niður þessa múra sem eru fátt annað en minnisvarði feðraveldisins.“
– Ylfa og Ösp
Stígðu á stokk stúlka! er kennsluefni í tónlist og leiklist fyrir unglingsstúlkur.
Höfundar eru kennararnir Ylfa Ösp Áskelsdóttir leikkona og Ösp Kristjánsdóttir tónlistarkona.
Markmið þessa kennsluefnis er að efla sjálfstæði, sjálfsmynd, sköpunargleði, frumkvæði og þor unglingsstúlkna í gegnum tónlist og leiklist.
Kennsluefnið nær yfir eina önn og er miðað við 160 mínútna kennslutíma á viku þar sem að hvor grein fær 80 mínútur til umráða. Í byrjun annar fer kennslan fram í sitthvoru lagi, það er að segja annars vegar í tónlistarkennsla og hins vegar leiklistarkennsla. Þegar líður á önnina fléttast greinarnar og kennslan saman.