Hreyfum okkur til að upplifa tónlist á eigin skinni!
Fyrir utan það, hvað við höfum öll gott af því að standa á fætur,
hreyfa okkur og koma blóðflæðinu af stað,
þá er hreyfing órjúfanlegur partur af tónlist.
Rytminn er í líkamanum og því kjörið að nota hreyfingu
til að yfirfæra orð í tónlist og tónlist í orð.
Leikir sem efla tjáningu og frjálsa hreyfingu við tónlist
–Snákadansinn
–Spegladansinn
–Stoppdansinn
–Tígladansinn